headerphoto

Kokkteil hristarar


Kokkteil hristarar eru notaðir til þess að auðvelda blöndun á drykkjum (oftast áfengum). Ís er oft settur í hristara til að kæla drykkina fljótt.

Drykkir sem eiga að vera glærir er ekki gott að hrista, því að það gerir þá skýjaða.

Hristarinn hér á myndinni er svokallaður "Cobbler Shaker", hann er þægilegur fyrir kokkteil drykki þar sem á að nota klaka til að kæla drykkinn en drykkurinn á ekki að vera borinn fram með klökum.

Önnur tegund af hristara heitir "Boston Shaker", sem að nýtir neðri helming á Cobbler Shaker en notar glas sem efri helming.